Á þetta blogg skrifar
Margrét Erla Maack
um það sem henni finnst skemmtilegt, leiðinlegt, sniðugt og kjánalegt. Ég afsaka alla einkabrandarana. Öllum nafnlausum athugasemdum verður skilyrðislaust eytt.
Ákveðin uppgjöf Ég bjó til mixteip handa sjálfri mér með fullt af lögum sem láta mér líða vel í hjartanu. Jebb. Hér eru öll Bridget Jones alein heima að naglalakka á sér táneglurnar - lögin mín, lög sem tengjast góðum og líka ljúfsárum minningum, en aðallega lög sem mig langar að syngja í karaoke (meaning: lög sem ég syng í hárburstann minn). Þetta er volume 1.
1. Emiliana Torrini - I Really Loved Harold 2. Nada Surf - Blonde on Blonde 3. Joni Mitchell - Big Yellow Taxi 4. Regina Spektor - Better 5. Dr. Hook - Sylvia`s Mother 6. The Chapin Sisters - Don't Love Me (stundum líka kallað "Don't Love You") 7. The White Stripes - We're Going to be Friends 8. Tori Amos - Smells Like Teen Spirit 9. Dolly Parton - I Will Always Love You 10. The Grass Roots - Let's Live For Today 11. Vampire Weekend - M79 12. Dexy's Midnight Runners - Come On Eileen 13. Hall & Oates - Maneater 14. Gerry Rafferty - Baker Street
Gloriu spila ég einungis á repeat - svo hún á ekki heima á mixteipi.
Sameiginlegt átak Allir að hjálpa til að kjósa þessa sætu stelpu svo hún meiki það sem módel og fái pening og geti komið að heimsækja Margréti. takktakktakk
Ef einhver hefði sagt við mig þegar ég var 14 ára hvað ég væri að gera í lífinu tíu árum síðar, hefði ég ekki trúað viðkomandi. "Já, Margrét mín. Þú ert að spila músík á Rás 2 og taka viðtöl. Síðan vinnurðu aðeins sem skrifta hjá Evu Maríu, þessari sem þér finnst svo mikið krútt í sjónvarpinu. Á kvöldin ertu magadansmær og plötusnúður." Á ég íbúð? "Nei, ekki enn. Fasteignamarkaðurinn er í rugli." Á ég eitthvað? Á ég bíl? "Nei, þú átt vespu." Uuuuu jahá... Á ég kærasta? "Nei, þú ert búin að taka eitt og hálft ár í að jafna þig eftir að kærastinn þinn dömpaði þér mjög dramatískt. Síðan er smá eftirsjá eftir tveimur mönnum sem þú kynntist í New York, þar sem þú bjóst eitt sumar. Annar er umboðsmaður uppáhaldssöngkonunnar þinnar og hinn er uppáhaldsstandupgrínistinn þinn. Þú ert samt skotin í einum rosasætum." Jahá. Og er ekkert í gangi? "Nei, þú ert svo gríðarlega upptekin. Þegar þú ert ekki í þessu öllu vinnudóti ertu til dæmis að undirbúa að taka upp myndband fyrir Emilíönu Torrini með vinkonum þínum. Akkúrat eftir 10 ár er höfuðið á þér að springa við það að reyna að redda FLOTTUSTU SÁPUKÚLUVÉL Á ÍSLANDI. Þú átt sko sápukúluvél, hún er bara ekki úti-hæf." Ég hlakka rosalega til að verða 34 ára. Þá kemur eitthvað ennþá meira random. Eins og til dæmis þessi óperukór sem eru eldri borgarar með mikkamúsgrímur.
Besta pikköpp í heimi? Úr msn samtali sem ég átti í dag: shall i make a facebook invitation and invite him to a party in my pants HAHAHAAHAHAHAHAHAHAHAHAH Þetta er fáránlega góð hugmynd. Í alla staði.
Ceilidh! Munið þið eftir skosku danskennslunni í afmælinu mínu? Fannst ykkur gaman? Nú er slegið til dansleiks! Alvöru músík, danskennsla og læti! Tekið skal fram að engrar danskunnáttu er krafist. Dansarnir byggja á auðveldum sporum og dansfélagaskiptum og eru kenndir á staðnum. Ég get ekki útskýrt þetta betur en: Þetta er stórskemmtilegt. Stemmingsvídjó er hér á youtube. Hvenær: Föstudaginn 10. október, kl 19:30. Hvar: Norræna Húsið Miðaverð: 1.200 kr. Hljómsveit: The Ceilidh Band - Reel Thing Hægt er að nálgast miða í gegnum ímeil - scottishdance á gmail.com Og! Meldið ykkur og bjóðið vinum ykkar með feis. Ég er að pæla í að gera eitthvað úr þessu - fara saman út að borða eða eitthvað áður. Verum í sambó kids. (mynd eftir Arnór Bogason)
Habblaha. Ég vil endilega breyta myndinni sem er notuð á innri vef RÚV, þar sem ég er að skipta um vettvang og stimpilkort og þesslags. Já, ég er bara svo gríðarlega ljót á myndinni sem er notuð þarna núna. Ég hélt að það yrði lítið mál að finna nothæfa mynd af mér, þar sem það eru yfir 400 myndir taggaðar á feis. En nei. Hvergi nokkurs staðar er til eðlileg mynd af mér sem hægt væri að nota í starfsmannaskrá. Lumir þú á slíkri, má endilega senda mér hana.
Konur með brostin hjörtu Undanfarið hef ég fundið mikið af söngtextum um konur og kelerí og partýstand - en þó yfirleitt undir merkjum þess að konurnar sem syngja séu bara svo eitursvalar og sjálfstæðar. Joan Jett söng um að hún skeytti engu um mannorð sitt og að hún vildi aðeins skemmta sér. Á 10. áratugnum komu Spice Girls fram með svokallað girl power, þar sem allt snerist um að klæðast sem stystu og flegnustu en jafnframt segjast vera sjálfstæðar, gallharðar og að það þyrfti miklar fórnir til að verða loverinn þeirra - til dæmis að vingast við hina meðlimi sveitarinnar. I know. Pant ekki. Upp á síðkastið hefur verið gert mikið úr stelpueiginleikum í textum alls kyns hljómsveita. Ungar konur vilja ekki eiginmann eða börn eða A4 líf - allavega ekki strax. Þær vilja vera í menntó svolítið lengur. Við viljum þó ekki vera álitnar einhverjar lausgirtar busastelpur - þvert á móti. Þetta er mikið í anda breyskra stúlkna, og dansar á mörkum þess að vera ofurímó og gríðarlega krúttlegt. Við viljum leika lausum hala en alls ekki missa af hlýju standi hún til boða. Þá eru ætíð raktir varnaglar - kannski til að við leyfum okkur ekki að falla fyrir gæjanum sem talað er við - eða kannski bara til að tapa ekki cúlinu. Strax. Ég man að mér fannst textinn í Broken Heart Tango mjög merkilegur á sínum tíma.
Oh- You blew my mind How can something so pale just suddenly shine Don't say you love me for a start Or you will be a boy with a broken heart. Stop - I want to dance And I might be up for a little romance I'll offer you a tango in the dark You're looking at a girl with a broken heart.
Þarna fannst mér blandað í fagurt ítaló-diskólag bestu hráefnum í textagerð - hjartasári, komdu og kysstu mig, lets get it on og hættu að tala og komdu að dansa (eða Shut up and Dance eins og Aubrey myndi segja). Kannski er þessi stúlka skíthrædd um að brjóta nýlímt hjarta, eða að hún vill fara rólega af stað. Eða kannski vill hún bara örlítið svefnherbergistjútt til að sjá hvort hún sé tilbúin að líma saman á sér hjartað. Ég veit það ekki - textinn skiptir um merkingu oft á dag. Annað lag sem á hug minn allan þessa dagana er Don't Love you með Chapin Sisters. Þarna erum við komnar enn lengra en að vera með blæðandi hjatasár á Kaffibarnum. Þarna er komin upp örlítil desperasjón, kannski er þetta bara á rigningarlegum mánudegi eða kannski erum við enn á tjúttinu - þarna er alveg búið að loka og við erum jafnvel á leið í eftirpartý í Vesturbænum :
...And if I call you and I'm lonely Just remember that it's only just a habit It's not me You're so easy, don't you see? Oh my darling, I don't love you And I'm not about to start Don't adore you, won't die for you Not afraid you'll break my heart (...) So if you see me out past midnight And I whisper that I just might Just remember that's not me I don't love you, don't you see?
Ég er samt ekki viss hvað er í gangi þarna. Hvort hún sé að reyna að lokka viðkomandi heim með sér með því að segja: Nei, ég er ekki skotin í þér og ég lofa að verða ekki sækó þrátt fyrir að þú viljir ekkert með mig hafa; eða hvort hún er í alvörunni að notfæra sér mann sem elskar hana. Hvort sem er í gangi, þá vitum við það að annar aðilinn, að minnsta kosti, er ekki að fara að breyta feisbúkkstatusnum sínum. Annar texti af svipuðum meiði er Little Bit með Lykke Li.
I think I'm a little bit Little bit A little bit in love with you But only if you're a little bit Little bit Little bit In lalalala love with me For you I keep my legs apart And forget it by my tainted heart.
Og þarna liggur það. Við viljum vera skotnar í þeim sem eru skotnir í okkur. Hjartasár gera okkur kleift að hvíla hjörtun - eða að minnsta kosti segjast vera að því. Það er hægt að blanda ástarsvínaríinu inn í dæmið þegar maður er viss. Það er nefnilega stranglega bannað að tapa cúlinu of snemma.
Mikið er 6.A 2004 úr MR mikill fjölmiðlagreddubekkur Skakki turninn, Sagan öll, Morgunblaðið, Rás 1, Nýtt líf, Vísir.is, Ríkissjónvarpið, Rás 2. Þar að auki er HHG nýhættur á Skjá einum. Hugsið ykkur ítökin sem við höfum í þjóðfélaginu! Djók í poka.
Þegiðu Margrét Hæjjj. Hvað er fólk að gera á Menningarnótt? Allir bissí? Ha? Um kvöldið? Okei. Það er allt í lagi, því við erum að dansa snemma, eða klukkan 5 í Iðnó. Með okkur verður hinn heimsfrægi Ahmed Fehkry sem er búinn að vera með okkur á frábæru námskeiði þessa viku. Við dönsum baladi og saidi (sem er dans með TURTLES-STÖFUM) auk þess sem Ahmed tekur sóló og tanoura-dans sem er svo ruglað töffaður að það er ekki hægt að útskýra hann... reyni að láta þessa mynd duga... En já, það væri gaman að sjá sem flesta. Þetta er ókeypis. Komaso kids.
Epískt símtal Halló? Já, Arnar? Já einmitt... Sæll. Ég heiti Margrét og er að vinna hjá RÚV. Atli Freyr sagði mér að þú ættir allar úrslitakeppnir Gettu betur á vhs... og það er nú þannig að master af keppni sem mig sárvantar til að gera þátt um (einn mann) hjá Evu Maríu er týndur. Er nokkur séns að... Uuu, ég held að þú hafir hringt í vitlausan Arnar, sem er alnafni minn... Ó fyrirgefðu, ég vona að þetta sé ekki að koma oft fyrir... Jú, veistu, sérstaklega eftir að ég flutti í gamla húsið hans.
We do the dance right We got it made like Ice cream topped with honey But we got no money Ís með hunangi er góður. Ís með hunangi og heitri súkkulaðisósu er góður. Í matargerð eru tvö trikk sem klikka sjaldan. Annað lærði ég frá honum Tómasi. Það snerist um það að allur matur verður betri ef maður setur smjör í hann. Og þetta er alveg satt. Hitt trikkið er síðan hunang og það lærði ég frá honum Ragnari. Hunang þykkir sósur og passar að sósan límist við pasta og að maríneringin festist vel við kjöt. Nammi nammi. Passa sig samt að setja ekki of mikið - þá verður maturinn of sætur. Besta sweet and sour sósan er jafnmikið af hunangi og sweet thai chilli sósu. (Og besta satay sósan er jafnmikið af sweet thai chilli sósu og hnetusmjöri...) Hunang og smjör eru bæði svona munaðs-condiments. Svo að það þarf lítið annað en þetta tvennt til að gera pakkapasta að hinum besta mat. Takkbless.